Færsluflokkur: Bloggar
Sunnudagur, 13.5.2007
Af vinnunni
Framkvæmdaráð kemst eiginlega aldrei saman í mat...
GAA og Hróðný í Hveragerði - pása í vinnuferðinni...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 13.5.2007
Orð
Ekki orð um Eurovision.
Eitt orð um líkamlegt erfiði: Fátt er betra. Fátt er sárara. Fátt minnir meira á aldurshnignun.
Nokkur orð um vináttu: Gulls ígildi nær ekki nógsamlega að lýsa mikilvægi og fegurð vináttu. Hún er miklu meira virði en allt gull heimsins.
Nokkur orð um mómentið þegar vonin brestur: Nú er staður og stund til að setja ný markmið og beina sjónum að splunkunýjum vonum.
Orð eru stórhættuleg. Það er hægt að oftúlka, mistúlka og vantúnka þau.
Þetta er nú allt og sumt sem ég sagt vildi hafa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 9.5.2007
Eftir gón kvöldsins
Jón: Fínn kall, klár, með lún humor og allt. Kominn í klisjubandalagið, það eru slæm örlög.
Guðjón: Ekki jafn galinn og virðist í fyrstu; hefur margt til síns máls. Sætir spékoppar.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 7.5.2007
Þetta segir Bifrastarvefurinn. Veit ekki meir....
Stuðningur við Framsóknarflokk: 20%
Stuðningur við Samfylkinguna: 62.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 37.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 38%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 50%
Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Samfylkingarinnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Sunnudagur, 6.5.2007
Ádagadrif
Annasöm en ágæt vinnuvika. Kaffifundur hjá Birnu vikonu á miðvikudagskvöld. Tveggja daga vinnufundur í Hveragerði, fimmtudag - föstudags. Mikið talað, planað, uppgert og krufið. Vonandi allt að því til mergjar. Helgin fór í að bera á garðhúsgögn, taka til, þvo þvotta, sinna nærfjölskyldu, elda mömmumat og sjá eftir að skrópa í stelpuferð og 100 ára afmæli (60+40). Það er víst ekki hægt að gera allt. Allavega ekki alveg alltaf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 1.5.2007
Kosningavalkvíðaröskun
Áminning fyrir fólk með slíka röskun:
Apparently, a democracy is a place where numerous elections are held at great cost without issues and with interchangeable candidates. - Gore Vidal.
The end move in politics is always to pick up a gun. - R. Buckminster FullerBloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þriðjudagur, 1.5.2007
Barn með eldmóð en litla veraldarþekkingu og yfirsýn
Í tilefni dagsins, get ég ekki stillt mig að birta hér ritgerð barns, sem ég geymi alltaf í kassa í bókahillunum. Hún er skrifuð 1960 og hefur verið rifin útúr stílabók. Skrifarinn var 9 ára. Blöðin eru öll gulnuð. Efst á blaðinu stendur: Ritgerð um launamun og afleiðingar hans. Ekkert annað. Ég hef sett inn punkta þar sem nöfn eru og leiðrétt tvær stafsetningarvillur.
Hefst nú "rigerðin":
Mér finnst að allir eigi að hafa sömu laun fyrir sömu vinnu og skil bara ekki hvernig nokkrum dettur nokkuð annað í hug. Mér finnst voðalega slæmt að allir í heiminum hafi ekki nóg að borða og deyji úr sjúkdómum. Mér finnst að það ætti að flytja fleira fólk til Íslands frá útlöndum, við getum alltaf fiskað í matinn og við kunnum svo margt. Við gætum haft svo miklu fleiri á þessu stóra landi. Er ekki alveg ferlegt að einhverjir kallar í Reykjavík skuli ráða því að það hafi ekki allir sömu laun? Stundum er það besta fólkið sem er fátækast. Af hverju fá mennirnir í bankanum hærri laun en ..... ? Og af hverju getur ..... ekki haft nóg fyrir sig og krakkana sína, ....? Ég bara skil þetta. Er ekki hægt að lækka launin hjá þeim ríkustu og bara borga þeim sem minnst fá, meira? Þetta er nú eitt með fátæka fólkið hér á Íslandi, en með allt fátæka fólkið í heiminum, er ennþá verra. Það fólk hefur ekki einusinni húsaskjól og hreint vatn. oft. Samanborið við það, erum við heppin og lukkuleg hér á landinu kalda. Ég skil ekki æðri máttarvöld. Ég talaði um það við síra ...... í gær. Hann sagði að ég væri með djúpar vangaveltur. Ég skil það heldur ekki. Það er margt sem ég ekki skil.
Jæja, nú er þessi ritgerð búin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 1.5.2007
Höfum vér gengið til góðs?
ALþJóðASöNGUR VERKALýðSINS
Fram, þjáðir menn í þúsund löndum,
sem þekkið skortsins glímutök!
Nú bárur frelsis brotna á ströndum,
boða kúgun ragnarök.
Fúnar stoðir burtu vér brjótum!
Bræður! Fylkjum liði í dag -
Vér bárum fjötra en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.
grípum geirinn í hönd,
því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd.
![]() |
Baráttudagur verkamanna haldinn hátíðlegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 28.4.2007
Kjarni & hismi
Dagurin var líka sól á Laugavegi og sjófuglagarg á voginum, vinna á stofunni og síðdegisblundur.
Kvöldið er Hidda og sólarafgangur á svölunum. To be.Hverjum sagði ég að ég væri sérleg áhugamanneskja um innivist, svalalegur og gönguferðir útá bílastæði? Minnið er ekki mín megin, so much is true. En lífsgæðaásóknin (sbr áðurnefnt) er það. Og þá meina ég ekki peninga, frægð og völd. Eiginlega er mér nákvæmlega og slétt skítsama um þá þrenningu. Lífsgæðin eru svalir, sól, bók, kaffi og vinkonur. Vinkonur.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bloggvinir
-
Sólveig Hannesdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Grétar Rögnvarsson
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Marta B Helgadóttir
-
www.zordis.com
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Svava frá Strandbergi
-
Brattur
-
Ragnar Freyr Ingvarsson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Ásgeirsdóttir