Liðin vika í myndum

2008-15-12_a_venta_026.jpg

 

 

Jensen x 2

 

 

 

 

 

 

2008-15-12_a_venta_038.jpg

 

 

Skírn í Kópavogskirkju

 

 

 

 

 

 

2008-15-12_a_venta_086.jpg

 

 

Ríkharður Helgi með foreldrum sínum

 

 

 

 

 

                                                                          

2008-15-12_a_venta_093.jpg

 

 

Aðventuhurðin

 

 

 

 

 

 

2008-11-30_hausti_skrytna_110_750547.jpg

 

Saumó á Gresjunni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 2008-11-30_hausti_skrytna_128.jpg

 

Vetrarfegurð

 

 

 

 

 

 

 

2008-11-30_hausti_skrytna_124_750551.jpg

 

Kjarnakonur 


Svona er þetta

Eðli mitt ég ekki skil
ótal þrautir beygja.
Mér finnst vont að vera til
vil þó ekki deyja.

Lít ég yfir liðin ár
leikur á tapi og vinning.
Ein er ljúf, en önnur sár
æskudaga minning.
 
12-9-08music.jpg40fash179.jpg

Þetta og þetta

12-7-dinnerfinal_749211.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Þó maður þykist vera að undirbúa þetta (sjá að ofan...)

er þó hugurinn allur við þetta:

 91px-faroe_stamp_164_william_heinesen.jpg1903517508_01_sx53_sclzzzzzzz.jpg


An Ethical Grook

I see
and I hear
and I speak no evil;
I carry
no malice
within my breast;
yet quite without
wishing
a man to the Devil
one may be
permitted
to hope for the best.
(Piet Hein: Grooks 1)
trillion_747927.jpg 
 
 

Desember

Vetrarjómfrú
með langar fléttur,
rólur
handa englum,

stráir örsmáum
rúsínum á
hlaðsteinana:


Kandíshjarta,
gullterta,

silfurkleina,
stjörnubjart
jólabrauð.

Uppi í
norðurljósaskýjunum
kindur á fjörubeit.



Jón úr Vör
1917-2000
 
 
 
 
 

Það er engin mynd með þessari færslu

Mjök er mér tregt um tungu að hræra.  Hvað þá penna.

Ég nenni ekki kjaftavaðli.

Að segja sem mest í sem minnstu er málið ( ..ég get það þó varla sjálf, en það er önnur og verri saga....)

Ég man bara hvað það var gott að sofna við duggudugg á Eskifirði. Hvað var góð lykt af nýþvegnum, rulluðuðum (með tré-rullu sem gerir sérstaka áferð og lykt) og straujuðum sængurfötunum sem móðir mín hafði annast. Hvað það var notalegt að heyra hreppsnefndarmennina hlæja hátt á neðri hæðinni og mömmu segja á efri hæðinni; æ, fara þeir ekki að hætta. Gömul minning af Alþýðuflokksheimili austur á fjörðum.

Ég óttast að arfleifð feðra minn og mæðra sé í húfi. Í húfi fyrir framtíðina.

Hvað er framtíðin? Egg okkar og sæði. Áframhald erfðaefnisins í nýju samhengi.  Nú er vá fyrir dyrum. Meina og segi vá. Og þessi skoðun kemur frá konu sem er þekkt fyrir óþolandi jákvæðniraus og Pollýönnusyndrome par excellence.

Sjálfsmynd þjóðar minnar er breytt. Ógnarbreytt.

Ég hugsaði margt, ófróð konan um hagfræði og vonsku heimsins (alias eða ekki alias), að þegar Albreit, Albufeira eða hvað hann nú heitir, sagði hér eittsinni, að maður þyrfti bara að telja byggingarkranana til að sjá fyrir um efnahagsþróun samfélags. Hann taldi hér í Reykjavík fimmtánhundruð krana og sagði: „ég gef ykkur eitt ár“. Síðan er eitt ár. Og ég kalla ráðamenn þessarar þjóðar minnar til ábyrgðar. Hvað er að kalla til ábyrgðar? Það er að segja: „Sorrý, ég sá óveðurský, en ég kaus að sóla mig enn um sinn. Ég stíg til hliðar og lýt því sem meiri hluti þjóðar og mestu sérfræðingar þjóðar segja, en skal gefa ráð af reynslu minni og mistökum. Þannig axla ég ábyrgð og geri það besta miðað við aðstæður.“

Ég kalla Þorvald Gylfason, ég kalla Gylfa Zoega, ég kalla Jón Baldvin Hannibalsson, ég kalla Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, ég kalla Árna Pál Árnason, ég kalla Ingibjörgu Sigurðardóttur, ég kalla Katrínu Jakobsdóttur, ég kalla marga, marga fleiri, komiði, leggið á ráðin og fáið jafningja ykkar til leiks.

Út með hina.

Um útrásrvíkinga, bankamenn og svokallaða athafnamenn án samfélagsvitundar nenni ég ekki að fjölyrða. Þeir eru farið fé (sem betur fer), betur að fyrr hefði verið.  Komi þeir hins vegar aldrei aftur og vei þeirra hugmyndafræði, ef hugmyndafræði skyldi kalla.

Hlustum svo á Pavanne eftir  Gabriel Fauré og gerum minni landsins að hætti Ásatrúarmanna.  

Ekkert minna.

Og engan meiri kjaftavaðal.



Ríkidæmi dagsins (ekki fyrir væmnifóbíska)

morgunn.jpg

29701_strip.gifhadegi.jpgeftirmi_dagur.jpgimage_main.jpgkvoldmatur.jpgkvold.jpgvlcrspbd2_738309.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  • Morgunn, ljúfur og kaffiríkur. Hvað væri líf án kaffis?
  • Vinnan, dýrmæt, erfið, skemmtileg, þreytandi, tilgangsrík, allt í einu og hvert fyrir sig.
  • Hádegið, litríkir og skemmtilegir vinnufélagar og litrík næring.
  • Eftirmiðdagur, kaffið eykur þor og andríki.
  • Eftirmiðdagsbúðarferð gerir mann ekki veraldlega ríkari en stundum er isnpírerandi að horfa, hlusta og observera í röðinni við kassann. Guðisélof fyrir röðina.
  • Kvöldmatur í ríki heimilisins. Stundum brauð með kæfu, stundum exótískur kjötréttur. Stundum bara sjeik.
  • Kvöldkyrrð við lestur orðríkra bóka í litríku kertaljósi. 
  • Svefnríkið.

 

 


Frá Mdm X

 sybil1_737681.jpg

 

 

 

Ofgnótt er

helber

ad nauseam

sine pauseam


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Guðný Anna Arnþórsdóttir
Guðný Anna Arnþórsdóttir

Netfang:                gudnya@regis.is
Önnur bloggsíða:   www.123.is/gudnyanna

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • IMG_0469
  • IMG_0452
  • IMG_0468
  • 3778637139 2cd7aca945
  • 7 QUINOA SALADE MIYOU
  • 5  NOT IN PARIS WAITER
  • 3 CARETTE WHEE FR PPL GO
  • 2 quinoa paris

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband