Marengs með karamellusósu

Marengs með karamellusósu
5 eggjahvítur
2 dl. sykur
2 dl. púðursykur
1 tesk. maizenamjöl
1 tesk. lyftiduft

3 dl. rjómi

Karamellusósa:
120 gr. smjör
120 gr. púðursykur
1 tesk. vanilludropar
1/4 dl. rjómi

Eggjahvítur stífþeyttar ásamt sykri, maizenamjöli og lyftidufti. Mótaðir tveir botnar sem eru bakaðir við 130° í 1 1/2 klukkustund og síðan látnir kólna með ofninum.

Smjör og púðursykur brætt saman í potti. Vanilludropum og rjóma bætt saman við og látið sjóða í nokkrar mínútur.

Marengsbotnarnir lagðir lagðir saman með þeyttum rjómanum. Karamellusósan kæld og síðan hellt yfir.
Heimild:  Fanneyjaruppskriftir (fanneyjaruppskriftir.blogspot.com)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Kona! Hvenær er þetta tilbúið hjá þér?

Hrönn Sigurðardóttir, 3.9.2009 kl. 23:16

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nammi namm, ætla að prófa þessa uppskrift, aðeins öðruvísi en mín, hvað heldur þú að þa sé ca. mikill rjómi í karamellusósuna?

Ásdís Sigurðardóttir, 4.9.2009 kl. 15:32

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta verður tilbúið á mánudaginn.... og fer í vinnuna mína, ef guð lofar.... Ásdís, uppskriftin segir fjórðungur úr desilíter, semsé bara oggulítið, eiginlega.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 4.9.2009 kl. 20:47

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ok darling takk.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.9.2009 kl. 21:23

5 Smámynd: www.zordis.com

Looking good! Dásamlegt augnakonfekt!

www.zordis.com, 6.9.2009 kl. 22:32

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

jeeee, hættulegt fyrir konu sem ekki borðar sykur, en nýtur þess að horfa á :´)

Kærleikur héðan

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.9.2009 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðný Anna Arnþórsdóttir
Guðný Anna Arnþórsdóttir

Netfang:                gudnya@regis.is
Önnur bloggsíða:   www.123.is/gudnyanna

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_0469
  • IMG_0452
  • IMG_0468
  • 3778637139 2cd7aca945
  • 7 QUINOA SALADE MIYOU
  • 5  NOT IN PARIS WAITER
  • 3 CARETTE WHEE FR PPL GO
  • 2 quinoa paris

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband