Miðvikudagur, 25.11.2009
Hjaltalín, lín, lín
Ég er svo yfir mig hrifin af Hjaltalín, að ég man ætíð hvar ég var stödd þegar ég heyrði eitthvert laga þeirra í fyrsta sinn ..... Og man það upp frá því, - ennþá.
Þetta er frekar klaufalega orðað hjá mér, en hugsunin er afskaplega skýr.
Bloggvinir
- Sólveig Hannesdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Grétar Rögnvarsson
- Steingerður Steinarsdóttir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Brattur
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Þorbjörg Ásgeirsdóttir
Athugasemdir
Sömuleiðis yndisleg lög.
Ásdís Sigurðardóttir, 26.11.2009 kl. 12:09
Hjartans vinkona. Myndirnar þínar eru engu líkar, svo mjúkar og ilmandi.
Sjáumst bráðum.
Þín Unnur
Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 27.11.2009 kl. 10:52
Þau eru hreint frábær, man þegar ég heyrði í þeim í fyrsta sinn, var í Norræna húsinu, heillaðist með það sama, ætla að hlusta á þau aftur núna á þessa árs jóladagatals Norræna hússins.
Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 19:21
Var á Grá kettinum á Akureyri um þar síðustu helgi á tónleikum með Hjaltalín.
Það var þvílík upplifun fyrir okkur hjónin. Meiriháttar :-)
Þau eru svo "natural" fersk og hrein og svo mikið þau sjálf.
Sætt hvernig söngvarinn fer alltaf upp á tærnar þegar hann er mikið að vanda sig í söngnum.
Svo söng Sigríður Thorlacius líka og kynnti diskinn sinn með lögum eftir Jón Múla.
Hún er gull þessi stelpa.
Ég fór beint og keypti diskana með þeim.
Kveðja
Hanna Birna
Hanna Birna Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 22:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.