Úr bókaklúbbnum

pvecopy.jpg

Karitas án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur.

Hugleiđingar fyrir bókaspjall hjá Mörtu Helgadóttur, september 2008.

 

Um Karitas án titils mćtti skrifa margt frá mismunandi sjónarhólum. Ég hef löngum haldiđ mest upp á Sjálfstćtt fólk og Heimsljós eftir Laxness (fyrri nú utan Bréf til Láru eftir Ţórberg). Mér finnst bćkurnar um Karitas eftir Kristínu Marju jafnast á viđ ţessar bćkur í ýmsu tilliti. Allar ryđja ţćr braut nýrrar hugsunar, nýs samhengis. Allar eru ţćr skrifađar af mikilli ritsnilld, innsýn í lífiđ og manneskjurnar og mikilli yfirsýn yfir menn og málefni.  Svo eiga ţćr sammerkt ađ vera fullar af táknum  (ţó ekki Bréf til Láru..) og skrifađar í mörgum víddum, sem gefur fóstrar og fóđrar nýjar hugsanir. Gallalausar eru ţćr auđvitađ ekki, frekar en önnur mannanna verk, t.d. finnst mér persónusköpun ábótavant í nokkrum tilvikum í Karitas án titils. Kannski gerir mađur of miklar kröfur ţegar svona snilld er annars vegar og finnst ađ verkiđ eigi ađ vera fullkomnađ..

Karitas án titils er gífurlega vel skrifuđ, á tćru og fallegu máli. Lýsingarnar eru stundum ţannig, ađ mađur finnur lykt og fćr gćsahúđ. Sagnfrćđilega séđ er hún mjög áhugaverđ og gefur innsýn í líf og baráttu alţýđufólks á Íslandi á fyrri hluta tuttugusu aldarinnar. Lýsingar frá frostavetrinum mikla 1918 eru áhrifaríkar og átakanlegar. En jafnvel skondnar líka. Í ţví felst snilldin svo oft.  Sem kvennasaga er hún brautryđjandaverk ađ ţví leyti, ađ ţarna fylgjumst viđ međ konu sem kýs ađra leiđ en hefđin býđur og uppsker fordóma og umtal, eins og flestir sem slíkt gera. Viđ kynnumst ástríđu hennar fyrir listinni, fórnunum hennar, sektarkenndinni, vonunum, sorginni - og sigrunum. Framsetningin er slík, ađ mađur verđur nćstum ţátttakandi og deilri kjörum međ ţessari konu.

Táknmyndir í bókinni eru margar og of langt mál ađ tala um ţađ allt hér. Hvađ finnst ykkur? Mér finnst til ađ mynda mannanöfnin táknrćn. Karitas er sama orđ og orđiđ caritas á latínu sem ţýđir: selfless love eđa óeigingjörn ást.  Stóra, óeigingjarna ástin hennar Karitasar er á listinni, getum viđ ekki veriđ sammála um ţađ? Bjarghildur, hin óblíđa systir, er ađ vissu leyti bjargvćttur, en líka afskaplega stríđ, stirđ og árásargjörn;  hildur: orrusta.  Sigmar, já Sigmar. Sigmar merkir: sá sem er sigursćll í orrustu. Og „vinur“ Halldóru í sveitinni fyrir vestan hét Sumarliđi. Ţađ táknar ţann sem er í víking á sumrin. Hvađa tillögur hafiđ ţiđ?

Lýsingarnar á listaverkunum eru perlur. Athyglisvert er ađ ţegar myndunum, tilurđ ţeirra og atvikum í kring er lýst, talar Karitas í fyrstu persónu en allt annađ er í ţriđju persónu. Hverju skyldi ţađ sćta? Mín upplifun er ađ ţar kristalliserist sjálfsupplifun Karitasar, sem er innilegust og mest „ekta“ í listinni. Ţar fyrir reynir hún ađ komast af.  Eruđ ţiđ sammála ţessu?

Ég gćti skrifađ margar síđur um ţessa bók og krókaleiđir hennar og kima. Lćt stađar numiđ ađ sinni en hlakka til ađ fylgjast međ skrifum ykkar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Ég sé elsku frćnka mín, ađ viđ erum međ sínhvoran smekk á bókum, en viđ ţví er ekkert ađ segja, annars vćri bara til ein bók, gefin út í svo og svo eintökum ár hver til ađ allir gćtu bara látiđ sér hana nćgja.   En ég las Karítas og kryf hana á annan hátt, ţađ er ţađ sem er svo skemmtilegt, ţannig koma svo margar sýnir, og ritskýringar jafnvel.  En svona er ţetta gćzkan. Kannske les ég hana bara núna, ţar sem mig vantar smálesningu. En langt er síđan ég hakkađi í mig Kristínu Marju, og mćli međ bókinni Hús úr Húsi, sem ég auđvitađ upplifđi  fyndna, ég veit ekkert hvort hún átti ađ vera ţađ.  

Sólveig Hannesdóttir, 27.9.2008 kl. 23:38

2 identicon

Élsku vinkona.  Mér finnst ţessi krufning ţín skemmtileg og ég er BARASTA svo innilega sammála.  Ţađ er reyndar langt síđan ég las bókina og get engu skynsamlegu bćtt viđ ţetta.  Ég bara ANN ŢESSARI BÓK og ţađ nćgir mér eiginlega.

Sunnudagsfađmlag og fljúgandi litríkar kveđjur

Unnur Sólrún (IP-tala skráđ) 28.9.2008 kl. 10:18

3 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Ţessi bók á mig algerlega, týndi mér í lestri hennar og var í annari veröld á međan.  Mér finnst krufning ţín á bókinni góđ og tilfinningar okkar gagnvart henni algjörlega í samhljóm. Gaman ađ ţví finnst mér.  Ég elska svona bćkur sem fara međ mann aftur til fyrri hlutar 20. aldar, t.d. bókin Himnaríki og helvíti er ein af mínum uppáhalds, ţá hreinlega hćtti ég ađ vera ég og verđ persóna í bókinni.  Takk fyrir ţetta mín kćra.

Ásdís Sigurđardóttir, 28.9.2008 kl. 11:48

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurđardóttir

hef ekki lesiđ ţessi bók, en bćkurnar hans laxnes hef ég lesiđ oft, sumar oft.

takk fyrir ţessa samanekt kćra kona

Kćrleikur til ţín

steina

Steinunn Helga Sigurđardóttir, 28.9.2008 kl. 15:47

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mikiđ er gaman ađ lesa ţetta hjá ţér. Ég varđ ekki alveg svona mikiđ heilluđ en samt.., Kristín Marja er frábćr höfundur. Ţađ hefđi mátt stytta báđar bćkurnar til ađ gera ţćr enn betri fannst mér (ekki síst seinni bókina Óreiđa á striga).  

Ég er sammála varđandi táknin í sögunni, mannanöfnin eru vel valin í ljósi ţess hver meining ţeirra er.  Sagan ber mörg einkenni hefđbundinna sögulegra skáldsagna og kvennasagna bćđi fyndin og dramatísk og stundum skemmtilega íronísk. Samtölinn eru mjög vel skrifuđ, myndrćn og áreynslulaus. 

Mađur spyr sig varđandi Karítas sjálfa og ţćr ţekktu íslensku listakonur sem persóna hennar í sögunni kallar fram í huga manns viđ lesturinn: ţurfa listakonur alltaf endilega ađ lifa lífi ţreyttrar ţvottakonu til ađ vera teknar alvarlega fyrir list sína? Ţurfa konur alltaf ađ velja milli ástarinnar og löngunar til ađ skapa?

Marta B Helgadóttir, 29.9.2008 kl. 15:24

6 Smámynd: www.zordis.com

Ţú setur bókinni háan sess, greinilega ţess virđi ađ kljúfa!

Njóttu kvöldsins ...... ég er ađ horfa á skrítna mynd međ Woody Allen

www.zordis.com, 29.9.2008 kl. 21:27

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Guðný Anna Arnþórsdóttir
Guðný Anna Arnþórsdóttir

Netfang:                gudnya@regis.is
Önnur bloggsíða:   www.123.is/gudnyanna

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_0469
  • IMG_0452
  • IMG_0468
  • 3778637139 2cd7aca945
  • 7 QUINOA SALADE MIYOU
  • 5  NOT IN PARIS WAITER
  • 3 CARETTE WHEE FR PPL GO
  • 2 quinoa paris

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband