Helgarferðin

Ég fór í helgarferð í dag.

Labbaði heilan helling í rigningu og roki. Komst í hús og rúllaði mér í rúllustiga og gekk deild úr deild og frá sófa til sófa. Fékk mér svo að borða á restaurant.  Lax í afskaplega óráðinni sósu með mauksoðnum kartöflum og grænmeti sem líktist papriku og belgbaunum að ytra útliti. Kaffi og súkkulaðikrem með nokkrum kökukornum á eftir. Skoðaði svo enn meira og labbaði áfram, labb, labb, labb. Margt bar fyrir augu og m.a. fékk ég ódauðlegar hugmyndir um flokkun og geymslumöguleika á enn meira drasli. Fékk mér ís og pylsu. Beið við kassa og fór aftur út í rok og rigningu. Nema að það hafði stytt upp og regnbogi einn skæslegur og rígmontinn teygði sig yfir svæðið.

Helgarferðin var  í Ikea.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Love u 2...

Fanney Björg Karlsdóttir, 15.9.2008 kl. 00:13

2 Smámynd: www.zordis.com

Regnboginn var hreint yndislegur! 

Mín ferð var í Perluna, súpu og brauð og síðan ekki söguna meir.

www.zordis.com, 15.9.2008 kl. 00:13

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ég öfunda þig ekki af Ikeaferð. Fer þangað helst ekki. Gangarnir eru svo langir og svo verður maður hálf loftlaus.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 15.9.2008 kl. 00:46

4 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

   Hvað keyptirðu margar sleifar???

Sólveig Hannesdóttir, 15.9.2008 kl. 17:46

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég elska svona Ikeaferðir. Þær eru mjög sjaldgæfar og því hver ferð sem ný helgarferð. Ég keypti by the way 3 sleifar saman í bandi (eins og fiskarnir á bryggjunni hér í den) og þær kostuðu heilar 75 krónur. Þetta hélt ég að væri ekki hægt á byggðu bóli, hvað þá í Garðabæjarhrauni.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.9.2008 kl. 21:14

6 identicon

Mér finnst yfirleitt gaman að fara í Ikea.  Þar finn ég mér góðan stól eða sófa og sit svo og horfi á alla sem ganga um.  Síðan eru það ALLTAF sænskar kjötbollur í lokin í bland við ,,Íkeanska" andagift.

Líklega var ég að hjóla í rigningunni milli mín og þín og þín og mín meðan þú rambaðir um ranghalana í Garðabænum og hrærðir í pottum með hagsýnum sleifum.

Já. Það var gaman að fá bókina í hendur í dag.  Ég var kvíðin fyrst en síðan bara afskaplega glöð.  Bókabúðin Iða stendur mér til boða á sunnudaginn kl. 5-7.  Þá býð ég upp á einhverjar léttar veitingar og hún Draumey frá Svíþjóð ætlar að lesa með mér.  Ég hlakka bara til.  Ég ætla að auglýsa þetta á síðunni minni.  Vilt þú láta boð ganga meðal fólks sem þú þekkir.  Vona að þér hafi líkað bókin.

Faðmlag

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 21:30

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Líkar bókin?? Ég er dolfallin. Get ekki beðið eftir að komast undir sæng með hana og sofna með hana á nefinu. Ástar-ástarþakkir fyrir mig og mína, elsku skáld- og vinkona.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.9.2008 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðný Anna Arnþórsdóttir
Guðný Anna Arnþórsdóttir

Netfang:                gudnya@regis.is
Önnur bloggsíða:   www.123.is/gudnyanna

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_0469
  • IMG_0452
  • IMG_0468
  • 3778637139 2cd7aca945
  • 7 QUINOA SALADE MIYOU
  • 5  NOT IN PARIS WAITER
  • 3 CARETTE WHEE FR PPL GO
  • 2 quinoa paris

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband