Föstudagur, 12.9.2008
Vitrar, aldnar, smart hefðarkonur
Ég á vinkonu sem er 83ja ára.Hún er búsett erlendis og bloggar.Ekki á íslensku.Hún vill alls ekki að Íslendingar lesi bloggið sitt, nema þeir séu dedikeraðir vinir hennar. Og hún fer í gífurlegt manngreinaálit. Þessi vinkona mín, sem heitir mdm X, segir líka eitt og annað sem hafandi er eftir en verður ekki kennt við hana. Hún hefur þó fallist á að það verði birt hér undir felunafninu mdm X. Það verður varla meira felu..
T.d. segir hún: Ef ég væri ekki svona andskoti löt, væri ég löngu búin að fá Nóbelinn.Svo segir hún líka:Menn og konur eru alveg eins. Allt kjaftæði um annað er kjaftæði. Konur fara bara á túr og þatsit. Mér finnst alltaf upp vera niður og niður vera upp. Og hægri vinstri og vinstri hægri. Ég skil ekki akkuru fólk gerir líf sitt svona flókið.nillingar? Ég veit ekki, ég hef aldrei lesið um slíkan, hvað þá þekkt. Þó fannst mér Hafsteinn miðill ótrúleg svikamylla. Ungdómurinn? Ja, fólk sem veit meira um Stephen King en Grím Thomsen, á náttúrulega bágt.
Það verður sagt meira frá mdm X á næstunni.
Bloggvinir
-
Sólveig Hannesdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Grétar Rögnvarsson
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Marta B Helgadóttir
-
www.zordis.com
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Svava frá Strandbergi
-
Brattur
-
Ragnar Freyr Ingvarsson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Ásgeirsdóttir
Athugasemdir
Endilega segðu okkur meira frá mdm X, greinilega yndislegur laukur. Finnst yndislegt svona fólk, og ekki síst hefðarkonur, sem "mála heiminn a.m.k. bleikan". Langar að heyra meira :-)
ASE (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 23:23
... skemmtilegt... sérstaklega þetta; Mér finnst alltaf upp vera niður og niður vera upp.
Ég á eftir að velta þessu fyrir mér lengi.
Brattur, 13.9.2008 kl. 08:22
Eigðu yndislegan og gómsætan rigningardag. Þessi kona hefur ýmislegt til síns máls, en fyrst og síðast þá litar hún mannlífsflóruna með sterkum pensildrögum og það er alltaf svo skemmtilegt.
Bókina fæ ég í hendur á mánudag og þá hjóla ég til þín með eintök.
Ástarkveðjur
Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 10:04
Hún er yndislegt, þessi kella. Við skiljum hvor aðra svo vel og hún mælir svo oft hug minn. Ég er hins vegar líka oft hissa og pirruð á henni. Hún á það til að fara yfir öll mörk, blessunin.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.9.2008 kl. 17:56
Glæsileg þessi maddamma X ... Ég er ánægð með þessar 7 lífsreglur nema helst númer 2 því ég get bara séð heiminn á minn hátt. Sennilega er ég að blekkja sjálfa mig því ósýnilegu vinir mínir segja að ég sjái heiminn með þeirra löngu lifuðu augum.
hlakka til þess að rautt verði blátt og blátt verði rautt ... eins gott að það verði samkomulag!
www.zordis.com, 13.9.2008 kl. 19:13
Ohhhhhhh, Zordis, þú gerir mig alltaf svo forvitna. Tell me more.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 14.9.2008 kl. 23:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.