Sunnudagur, 31.8.2008
Líf & list
Takk þið öll, sem senduð blóm, kort, gjafir og góðar kveðjur út af fráfalli Ágústu okkar. Og þið sem komuð og drukkuð með okkur kaffi og gáfu faðmlag: taaaaakkkkk. Blómin liflðu lengi og enduðu í þurrkvinnslu sem stendur enn yfir, í þessum rituðum orðum.
Við Freydís máluðum bæinn rauðan á Menningarnótt, en einungis milli kl. 15oo og 19oo, sem telst nú tæpast nótt. Trúar okkar gömlu stöðum, fórum við á Súfistann í Iðuhúsinu og nutum góðra veitinga. Vorum þó næsta niður-rigndar þegar við komum í hús, eins og reyndar allir aðrir borgarbúar, þ.e. þeir sem gleymdu sjógöllunum heima.
Gamlar vinkonur komu til mín á föstudagskvöld og var það hin stórágætasta samkunda. Konurnar sammála um ágæti eigin skoðana og hugmynda. Slíkt er alltaf til bóta. Svona kraftur getur flutt fjöll. Hver veit nema Fjallaflutningur ehf komi út úr þessu hjá okkur. Myndavélin fór á flakk og fannst ekki þegar átti að mynda hópinn. Hún fannst svo þegar gestir voru á bak og burt og ég tók bara mynd af leifunum ....
Nokkrar bloggvinkonur opnuðu málverkasýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær og var þar bæði fagnaðarfundur og mikil upplifun að sjá verk þeirra allra augliti til auglitis en ekki einungis á tölvuskjá. Mæli með þessari sýningu sem stendur til 14. september. Sýnendur eru m.a. Guðný Svava Strandberg (sjá mynd - ásamt Guðmundi fyrrum stórbloggara), Katrín Snæhólm og Zordís. Þessar þrjár konur hafa allar sína linka í bloggvinahóp mínum. Á síðunum má sjá þeirra stórkostlegu list.
Dagurinn í dag endaði með því að við Unnur Sólrún von Eskifjörður endurskilgreindum heiminn og tilgang lífsins. Það er nauðsynlegt að gera það annað slagið til að ná áttum og vita hvert maður er að fara. Alveg óþarfi að fara eintómar vegaleysur.
Bloggvinir
-
Sólveig Hannesdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Grétar Rögnvarsson
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Marta B Helgadóttir
-
www.zordis.com
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Svava frá Strandbergi
-
Brattur
-
Ragnar Freyr Ingvarsson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Ásgeirsdóttir
Athugasemdir
Það var ljúft að hitta þig, nú hlakka ég til að hitta ykkur hjónin hér á Selfossi og vonandi sem fyrst. Kveðja


Ásdís Sigurðardóttir, 31.8.2008 kl. 20:58
Takk fyrir yndislega komu þína, þú ert jafnflott, í vöku sem draumi! (enda frá firðinum fagra)
www.zordis.com, 31.8.2008 kl. 22:42
Vonandi hafið þið Unnur komist að góðri niðurstöðu, og ég efast ekki um það, hefði nú viljað geta kastað á hana kveðju um daginn en var bara ekki á svæðinu. Búið að vera gaman að fylgjast með ferðum þínum og þinna hér. Bestu kveðjur að austan Grétar
Grétar Rögnvarsson, 31.8.2008 kl. 22:43
Hefði gjarnan viljað mæta á sýninguna ... en nú fara að koma palestínskar flóttakonur og við tvær skvísur vörðum laugardeginum í að gera kósí í íbúðinni sem "okkar" flóttakona fær. Ótrúlega gaman. Þær stöllur verða í heilli opnu í Vikunni sem kemur út á fimmtudaginn kemur, mynd af þeim saman og síðan af verkum þeirra.
Knús í bæinn.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 31.8.2008 kl. 23:56
Þær stöllur ... þá átti ég við listakonurnar, sorrí, allt í belg og biðu hjá mér.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 31.8.2008 kl. 23:57
Njóttu lífsins.
Njóttu þess að það ert þú sem stjórnar peningunum.
Njóttu þess að þú ert stjórnandi yfir lífi þín.
Njóttu þess sem lífið hefur kennt þér.
Njóttu þess að vera þú og hafa kjark til þess að vera þú.
Njóttu stundarinnar því stundin kemur aldrei aftur.
Átt þú góðan dag.Anna Ragna Alexandersdóttir, 1.9.2008 kl. 10:58
Takk fyrir komuna á opnunina, nafna mín.
Gaman að myndinni af okkur og Guðmundi.
Svava frá Strandbergi , 2.9.2008 kl. 02:21
Það var alveg frábært að sjá þig Guðný Anna..og kærar þakkir fyrir komuna. Þú ert bara svona ljóskona..það birtir þar sem þú kemur.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 2.9.2008 kl. 22:46
Þið eruð nú meiri örlagakrúttin, takk fyrir falleg komment!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.9.2008 kl. 23:17
Takk fyrir síðast Guðný Anna. Ég tek undir með Katrínu, þú hefur einstaka nærveru.
Marta B Helgadóttir, 2.9.2008 kl. 23:31
Jeminn, enn og aftur takk fyrir!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 5.9.2008 kl. 20:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.