Sunnudagur, 10.8.2008
Gauti og Thomasina
Gauti Friðriksson og Thomasina Larkin giftu sig í annað sinn í Ontario, Kanada, 2. ágúst sl. Fyrsta brúðkaup þeirra átti sér stað 3. október 2007 í Tokyo. Nú er beðið eftir 3ja brúðkaupinu hér á Íslandi, svo allir vinir og vandamenn geti tekið þátt í lukkunni.
Gauti og Thomasina hittust í Tokyo vorið 2007, þegar Thomasina bauð Gauta regnhlíf til afnota fyrir utan klúbb einn þar í bæ, í úrhellisrigningu um nótt. Hún er frá Kanada, hann borinn og barnsfæddur Íslendingur og þau fundu hvort annað í Japan. Það er því vel við hæfi að þau gifti sig í þremur heimsálfum, ekki satt?
Fleiri myndir síðar.
Bloggvinir
-
Sólveig Hannesdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Grétar Rögnvarsson
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Marta B Helgadóttir
-
www.zordis.com
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Svava frá Strandbergi
-
Brattur
-
Ragnar Freyr Ingvarsson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Ásgeirsdóttir
Athugasemdir
Mikið er Gauti líkur mömmu sinni ... fallegt brosið ykkar.
Til lukku með þau lukkulegu. Snilldarlega gert
www.zordis.com, 10.8.2008 kl. 23:37
Innilega til hamingju.
Brúðkaup eru eitt af því fallegasta sem til er
Kolbrún Jónsdóttir, 10.8.2008 kl. 23:40
Geislandi par. Til hamingju!
Hrönn Sigurðardóttir, 10.8.2008 kl. 23:41
Til hamingju með parið, þau eru yndisleg, hvenær er svo íslenska brúðkaupið??
Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2008 kl. 23:57
Innilega til hamingju
......Ljómandi fallegt par..... það geislar af þeim hjónasvipurinn.....
...
Fanney Björg Karlsdóttir, 11.8.2008 kl. 00:03
Hjartanlegar hamingjuóskir með brúðkaupsparið.
Svava frá Strandbergi , 11.8.2008 kl. 07:38
Takk fyrir það, elskini míni eins og vinkona mín á Eskifirði sagði alltaf. Þau eru dýrðarboltar, þessir krakkar. Það veltur á ýmsu hvenær brúðkaupið getur orðið hér heima, hugsanlega ekki fyrr en 2009. Ágætt að hafa svona eitt á ári ....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.8.2008 kl. 07:59
Reyndi að hringja í vikunni, vegna ákveðins atburðar. En innilega til hamingju með Gauta, rosalega sjarmerandi par. Já mér líst vel á að fresta til næsta árs, svona til að ná áttum með þetta, og gaman að hlakka til.
Sólveig Hannesdóttir, 11.8.2008 kl. 11:07
frábært til hamingju með allar giftingarnar hjá þeim ! þau er aldeilis búinn að staðfesta þetta fyrir Guði sínum !
kærleikur til þín og allra
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 15:56
Innilegar hamingjuóskir!
Greta Björg Úlfsdóttir, 12.8.2008 kl. 22:11
Já, til hamingju með þau. Þetta er glæsilegt fólk.
Steingerður Steinarsdóttir, 13.8.2008 kl. 10:27
Tvöþúsund sinnum til hamingju.
Lilla Sver, 14.8.2008 kl. 00:27
Takk, takk, kvinnur mínar kæru!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 18.8.2008 kl. 00:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.