Kaflaskil

Skrýtið er lífið og skrýtinnn er dauðinn. Um leið og litla kjarnafjölskyldan mín fagnaði saman í Kanada, berst frétt um að tengdamamma hafi farið yfir móðuna miklu. Það var óvænt og þungt, þrátt fyrir undangengin veikindi, sem allir héldu að væru á undanhaldi.

Alltaf er maður ósáttur við þessi umskipti, hvað svo sem klisjur um "að dauðinn sé eðlilegasti hluti lífsins" (hver er þá næsteðlilegasti...?), "allt taki enda, gott og vont" og að "nú hafi sá burtfarni fengið frið." Kannski er sá sem eftir verður mun ósáttari en sá sem í  burtu fer.

Ég hef einhverja innri vissu um að mín elsku tengadmamma sé sæl og ánægð, hvar sem hún er. Ég sé hana horfa brosandi á okkur í daglegu brasi okkar, gott ef ég heyri ekki fallega hláturinn hennar líka. 


     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Kæra vinkona...mínar innilegustu samúðarkveðjur til þín og þinna á þessu erfiðu tímum...

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.8.2008 kl. 22:28

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Samúðarkveðjur til þín og þinna.

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 22:32

3 Smámynd: www.zordis.com

Elsku Guðný Anna, mínar einlægu samúðarkveðjur til ykkar.

Þú segir "næsteðlilegasti" ... góð vangavelta og það er ekki neitt næstbest þegar kær meðlimur klárar lífshlutverk sitt.

Knús á þig kæra kona!

www.zordis.com, 9.8.2008 kl. 22:46

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

 Candle  Candle Að ég skildi ekki hafa vitað þetta, skrítinn er veröldin.  Þessi yndislegu hjón eru mínur uppáhalds eldri vinir á Selfossi. Mörg góð samtölin hef ég átt við þau á förnum vegi og alltaf þótt einstaklega mikið til þeirra koma.  Frú Ágústa, eins og ég segi alltaf í huga mér, er einstök manneskja og það er mér heiður að hafa fengið að kynnast henni. Kjartan er gull af manni.  Ég var einmitt að hugsa þegar ég frétti af andláti hennar að hún hefði farið snöggt, mér finnst ekki langt síðan ég hitti þau í Nóatúni og átti gott samtal við þau. Ég vissi þó að hún hefur þurft að ganga í gegnum ýmislegt, aðgerðir og annað en mér fannst eins og hún yrði hér bara áfram, það var svo mikil lífsgleði i andliti hennar og framkomu.  Mig langar einmitt svo mikið að fylgja henni en get svo lítið setið vegna baksins svo ég var búin að hugsa mér að kíkja til Kjartans þegar hversdagurinn tekur aftur við eftir jarðarför og annað.  Það er mikill sjónarsviptir af Ágústu, ég bið þig að taka utan um Hjálmar vin minn og skila samúðarkveðju frá mér, ég samhryggist ykkur öllum.  Gangi ykkur vel í því sem framundan er og guð blessi minningu einstakrar konu. Hún gaf mikið af sér og verður sárt saknað.   Candle 

Ásdís Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 22:49

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Beztu þakkir, elsku stelpur mínar. Mér þykir vænt um að heyra þessi ummæli þín, Ásdís kær. Kjartan hefði sko ekkert smágaman af því að fá þig í heimsókn. Alltaf gott kaffi á könnunni hjá honum í fallega eldhúsinu þeirra Gústu.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.8.2008 kl. 10:07

6 Smámynd: Brattur

... ég votta þér samúð mína...

Brattur, 10.8.2008 kl. 18:45

7 Smámynd: Heidi Strand

Samúðarkveðjur til þín og þína.

Heidi Strand, 10.8.2008 kl. 19:17

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Candle .. fæ hér lánað kerti hjá Ásdísi, ég votta þér og fjölskyldunni samúð mína...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.8.2008 kl. 23:11

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Takk fyrir góðar kveðjur.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.8.2008 kl. 07:56

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Innilegar samúðarkveðjur til þín.

Greta Björg Úlfsdóttir, 12.8.2008 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðný Anna Arnþórsdóttir
Guðný Anna Arnþórsdóttir

Netfang:                gudnya@regis.is
Önnur bloggsíða:   www.123.is/gudnyanna

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_0469
  • IMG_0452
  • IMG_0468
  • 3778637139 2cd7aca945
  • 7 QUINOA SALADE MIYOU
  • 5  NOT IN PARIS WAITER
  • 3 CARETTE WHEE FR PPL GO
  • 2 quinoa paris

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband