Föstudagur, 25.7.2008
Dirrindí
Og dýrðin heldur áfram.
Í hitameti hausinn verður haffortí, daffortí, dúmm.
Fótadekur og nudd glöddu fót og fót. Og kálfa.
Guðbergur Bergsson komplett í allri sinni dýrð á náttborðinu. Inní honum eru aðskiljanlegustu bókamerki.
Á stofuborðinu er svo Moggi, Femina og Intelligence frá The Economist. Svo og Reykjavík 100+1
Undir geislanum er Tom Waits, hrífandi hrár.
Regnið bylur rúðum á. Nogg, nogg, nogg. Vekur værð.
Rökkvuð nóttin bíður.
Á morgun er það sveitin, ekki milli sanda, heldur sunnan heiðar.
Bloggvinir
-
Sólveig Hannesdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Grétar Rögnvarsson
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Marta B Helgadóttir
-
www.zordis.com
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Svava frá Strandbergi
-
Brattur
-
Ragnar Freyr Ingvarsson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Þorbjörg Ásgeirsdóttir
Athugasemdir
yndislegt, njóttu íslensku sveitarinnar, er reyndar ekki í vafa að þú gerir
Kærleikur til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 26.7.2008 kl. 21:36
Sæl after eftir langt hlé elsku vinkona. Loksins er ég mætt aftur til leiks. Þetta er merkt HLJÓÐALJÓÐ hjá þér. Skrifa þér línu í kvöld.
Kærleiksfaðmalag
Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 11:56
Dúllurnar mínar, takk, takk. Já, naut sveitarinnar í botn. Gott að fá þig aftur, elsku Unnur mín!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.7.2008 kl. 22:02
Frábær færsla.
Steingerður Steinarsdóttir, 28.7.2008 kl. 10:49
Long time!
Notalegt að lesa og lifa sig með.
www.zordis.com, 30.7.2008 kl. 09:45
Ég samgleðst ykkur svo sannarlega vegna góðveðursins.
Var í Tallinn frá föstudegi til miðvikudags í ámóta blíðu og heilsað hefur Fróni síðustu dagana.
Naut þar magnaðra nuddkvenna, fékk mér SPA-pedicure, sem er með því besta sem hent hefur fætur mínar. Svo var það að sjálfsögðu kryddað með góðum vínum og Bowmore frá Islay eyju.
Víst er maður kóngur um stund við slíkar aðstæður.
En lappirnar eru eins mjúkar og kinnarnar á Siggu, sálugu, Tomm
Dunni, 31.7.2008 kl. 08:55
Gangi þér vel með Guðberg, og til hamingju með systur Þina á morgunn......
Sólveig Hannesdóttir, 1.8.2008 kl. 12:59
(Stuna) Þegar veðrið á Íslandi er svona gott, þá langar mann alltaf heim.
Eeeeeeeen svo fer maður bara út í garð eða niður að vatni með vinum sínum og syndum, borðum og drekkum eins og værum við kóngar í einn dag.
Gunnar Páll Gunnarsson, 2.8.2008 kl. 08:21
Njóttu vel
Marta B Helgadóttir, 4.8.2008 kl. 23:43
Falleg færsla
og bestu kveðjur til þín.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 5.8.2008 kl. 01:59
Já sumarfrí á Íslandi er yndislegt.
Laufey B Waage, 5.8.2008 kl. 09:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.